Ávinningur
Vertu fullviss um samkeppnishæfni þíns fyrirtækis
Rétt laun fyrir fólk og fyrirtæki
Vertu viss um fyrirtækið þitt sé að greiða sanngjörn og samkeppnishæf laun. Rúna veitir öryggi til bættrar ákvarðanatöku og sýnir stöðu þíns fyrirtækis miðað við markaðinn.
Yfirsýn yfir launagögn í rauntíma
Rúna veitir stjórnendum yfirsýn yfir laungögn á einfaldan og fljótlegan máta þar sem gögnin eru nákvæm en skiljanleg.
Fersk launagögn
Launagögn eru byggð á ferskum órekjanlegum gögnum frá samstarfsfyrirtækjum Rúnu og eru uppfærð mánaðarlega.
Samstarfsaðilar
Mikilvægt að vera með fersk markaðsgögn
Við fáum markaðsgögnin einu sinni á ári og uppreiknum tölurnar miðað við breytileika á launavísitölu frá Hagstofunni. Það væri til mikilla bóta að vera með lifandi gagnagrunn þar sem við gætum flett þessum upplýsingum upp og séð rauntölur fyrir síðasta mánuð eða ákveðið tímabil.
Lykilatriði
Taktu gagnadrifnar ákvarðanir í launasamtölum
Rúna er byggð á áratugareynslu starfsmanna Origo á gagnavísindum og mannauðs-, launa- og fjárhagskerfum.
Einfaldar og auðskiljanlegar skýrslur auðvelda þér að máta eigin mannauð við markaðinn.
Gögn eru flokkuð eftir samræmdu flokkunarkerfi ÍSTARF95 og eru gögnin send beint frá launakerfum
Aukið gagnsæi á markaðsgögnum styður við sanngjörn launakjör og veitir öryggi inn í launasamtal.