Notendamiðuð hönnun sem skilar árangri

Góð hönnun snýst ekki bara um fagurfræði heldur djúpan skilning á þörfum notenda. Við hjá Origo vinnum náið með þínu teymi við að hanna lausnir sem byggja á þörfum ykkar viðskiptavina og markmiðum fyrirtækisins. Þannig sköpum við betri notendaupplifun, aukið traust og meiri ánægju viðskiptavina.

Brand myndefni, ljóshært módel í dragt

Ávinningur

Bætt notendaupplifun og aukinn árangur

Þegar notendur skilja vöruna þína og finna það sem þeir þurfa fljótt og án fyrirhafnar verða þeir ánægðari og líklegri til að halda áfram að nota hana.

Styrkir ímynd þína

Hönnun sem endurspeglar gildi og persónuleika vörumerkis þíns skapar sterkari tengingu við viðskiptavini.

Óaðfinnanleg upplifun

Við tryggjum að upplifunin sé jafn góð hvort sem notandi er í síma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hagkvæm þróun

Með vel skilgreindum hönnunarsprettum getur þróunarteymið þitt unnið mun hraðar sem sparar þér bæði tíma og peninga.

Notendaupplifun (UX)

Notendaupplifun í fyrirrúmi

Við vitum að notendaupplifun ræður úrslitum um hvort vara nái árangri eða ekki. Sérfræðingar okkar byrja á því að rannsaka og ræða við raunverulega notendur til að skilja þarfir þeirra.

Við kortleggjum alla notendaupplifunina frá fyrstu snertingu til enda og einblínum á tilfinningar og viðbrögð notandans í hverju skrefi. Með prófaðri aðferðafræði tryggjum við að lokaútkoman standist ekki bara kröfur heldur skapi jákvæða upplifun sem notendur vilja endurtaka.

myndskreyting

Viðmótshönnun (UI)

Andlit vörunnar

Hönnuðir okkar vita að viðmótið er andlit vörunnar þinnar. Við búum til fagurfræðilegt og gagnvirkt viðmót sem lítur ekki aðeins vel út, heldur leiðbeinir notandanum sjónrænt í gegnum upplifunina án þess að hann þurfi að hugsa of mikið.

Við vinnum markvisst með letur, liti, form, grafík, smellifelti og rými til að skapa samræmda og leiðandi upplifun. Hvert smáatriði er ígrundað til að styðja við notendaupplifunina.

myndskreyting

Fjárfestu í því sem virkar

Hönnunarsprettir

Hönnunarsprettir eru frábær kostur þegar þú þarft að komast að því hvort hugmynd virki áður en þú fjárfestir í þróun. Í stað þess að eyða mánuðum í að byggja eitthvað sem gæti virkað, förum við kerfisbundið í gegnum allt ferlið frá greiningu á vandamáli til prófaðrar hugmyndar á sem stystum tíma.

Við vinnum með þér við að skilgreina vandamálið, þróum hugmyndir, búum til frumgerð og prófum hana með raunverulegum notendum. Í lokinn veist þú hvort hugmyndin þín virkar áður en þú ferð í kostnaðarsama þróun.

myndskreyting

Afhverju að velja Origo?

Markvisst þróunarferli

Það getur verið dýrkeypt að byrja á vitlausum enda í vöruþrún. Við rannsökum virkni vörunnar með öllu teyminu og höfum endanotandann í fyrirrúmi í gegnum allt ferið.

Samvinnuhönnun sem skilar árangri

Við leggjum áherslu á að teymi hafi sameiginlega stefnu og noti styrkleika hvors annars. Samvinna í þróunarferli er grundvallaratriði til að fá bestu niðurstöðuna.

Þú hefur aðeins nokkrar sekúndur

Notendur ákveða hvort þeir ætli að nota nýja vöru á aðeins 10-20 sekúndum, stundum enn skemmri tíma. Við tryggjum að varan þín standist þessar kröfur.

Mælanlegur árangur

Hönnun okkar byggir á gögnum og rannsóknum, ekki bara tilfinningu. Þú færð lausnir sem hjálpa þér að ná þínum viðskiptamarkmiðum.

Ráðgjöf

Hvernig getum við hjálpað þér að ná meiri árangri?