GreenSenze - Sjálfvirk lausn sem greinir kolefnisspor

GreenSenze, sem er samstarfsverkefni Origo og KPMG, býður upp á einfalda lausn fyrir fyrirtæki til að greina og fylgjast með kolefnisspori í innkaupum. Markviss greining á kolefnisspori er forsenda þess að fyrirtæki geti mótað aðgerðir sem draga úr kolefnislosun og stuðla að sjálfbærni í rekstri. Með GreenSenze getur þú fylgst með þróun mála með tilliti til markmiða fyrirtækisins og brugðist hratt við.

Myndskreyting

Af hverju GreenSenze?

Gríptu strax til aðgerða

Aukin skilvirkni

Með GreenSenze má sjá þróun kolefnislosunar á milli mánaða, þar sem upplýsingar um kolefnislosun í innkaupum reiknast um leið og rafrænn reikningur berst.

Betri ákvarðanataka

GreenSenze greinir hvar hægt er að gera betur í kolefnislosun, sem veitir tækifæri til að bæta ákvarðanatöku og innleiða grænni innkaup.

Bætt yfirsýn og skýrslugerð

Með GreenSenze færðu bætta yfirsýn yfir kolefnislosun og getur auðveldlega útbúið skýrslur sem eru tilbúnar til notkunar.

Umslag

Prufuaðgangur

Viltu sjá hvernig GreenSenze virkar?

Fylltu út formið hér að neðan og sjáðu um leið hvernig GreenSenze virkar

Sjálfvirk greining

Tækifæri til að gera betur

Markviss greining á kolefnisspori er forsenda þess að fyrirtæki geti mótað aðgerðir sem stuðla að sjálfbærni í rekstri. GreenSenze sýnir þér svart á hvítu hvar fyrirtækið þitt getur gert betur í innkaupum til þess að minnka kolefnisspor, en með skönnun rafrænna reikninga þá greinir GreenSenze sjálfvirkt þá losun sem á sér stað um leið og reikningur berst.

Aðgengilegar upplýsingar

Innsýn í öll umföng innkaupa

GreenSenze býður meðal annars upp á kolefnisgreiningu á umföngum 1, 2 og 3. Oft getur reynst erfitt að ná utan um öll þrjú umföng vegna skorts á upplýsingum og gögnum, en með aðstoð GreenSenze verða þessar upplýsingar aðgengilegar og skýrar. Hægt er að greina hvert umfang fyrir sig, fylgjast með þróun losunar eftir tímabilum og sjá kolefnisspor innkaupa alveg niður á einstakar vörulínur.

Ráðgjöf

Vertu með þeim fyrstu til að nota GreenSenze